Gamalt húsráð til að fyrirbyggja eyrnabólgur

Börnin mín voru með síendurteknar eyrnabólgur og læknirinn sem við leituðum til vegna þessa vildi seta rör í eyrun á þeim.  Þar sem við erum í ætt sem ekki má svæfa á venjubundinn hátt, treysti þessi læknir sér ekki að gera neitt frekar í málinu og var því hætt við að seta upp rör í eyrun á börnunum mínum.  

Við pöntuðum því tíma hjá læknir sem hefur margra ára reynslu, er hættur í dag vegna aldurs og hann gaf okkur ráð sem svínvirkaði. Ráðið er þetta:

  • Hækka höfuðlagið í rúmi barnsins
  • Nefdropar fyrir svefn í tiltekinn tíma
  • Enginn mjólkurfita þ.e. bara skyr og undanrennu aðra fitu má borða, bara ekki mjólkurfitu
Eins og ég sagði áður, eftir 6 mánuði hættu þau að fá eyrnabólgur og vökvi í miðeyra hvarf.  En þetta tekur nokkra mánuði, en þetta er vel þess virði að reyna.  
mbl.is Draga þarf úr lyfjanotkun barna og bæta réttindi vinnandi foreldra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Sæl. Ég held ég viti hver sá gamli er. Móðir mín kendi mér þetta á syni mína 5. Móðir hennar hún amma mín í Tungu kendi móður minni þetta og ég er að reyna að kenna sonum mínum elstu þessi húsráð. Þetta virkar mjög vel.

Níels A. Ársælsson., 25.4.2007 kl. 16:28

2 Smámynd: Áslaug Sigurjónsdóttir

Þykir gaman að heyra að fleiri hafa notið ráða læknisins, og hvet ég því aðra sem eiga börn með eyrnavandamál að prufa þetta ráð.  En það verður að vera meðvitaður um aðra fæðu sem kæmi í staðinn fyrir mjólkurmatinn, eða kalkið og fituna sem er nauðsynlegur þáttur í þroska og vaxtarskeiði barna.

Áslaug Sigurjónsdóttir, 25.4.2007 kl. 18:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband